ALoHA!!
15.07.2007 00:33:40 / helga_b

Meeeeeeeeeeeemories.........

Ohh ég og Helena (kærastan hans Denna) sitjum hérna og erum að rifja upp gamla tíma...

Bananas in Pajamas... http://www.youtube.com/watch?v=CJkPWMaNaIM

Ponyhestarnir... http://www.youtube.com/watch?v=98XkB4bh7ic

Raggydolls... http://www.youtube.com/watch?v=vrDiW00__C4

Kærleiksbirnirnir... http://www.youtube.com/watch?v=mVtItQsrjgc

Snorks... http://www.youtube.com/watch?v=I4ALjDSsMd4

En ég fann ekki Undrabarnið Alex, og man ekki hvað þátturinn með fólkinu sem var að reyna bjarga Kóröllunum frá ruslafólkinu á skipinu hér.. Ef einhver man það eða finnur please comment.. En alltaf gaman að fá comment annars. ;)

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.07.2007 17:33:03 / helga_b

4.dagar

Halló halló gott fólk.. Jæja nú styttist í það sem ég og Ellert höfum dreymt um alla ævi.

Við fáum hundinn á föstudaginn :D FUUUUUCK!!!! mig hlakkar svo til að ég er að deyja, í hvert skipti sem ég hugsa um hann fæ ég fiðring í magann. Ég er örugglega búin að vera mest þreytandi manneskja í heimi í júní.. Eina sem ég segi er: "Ég er að fara að fá voffa!" eða þegar ég horfi á mynd af husky "Ég er að fara að fá svona"

ok ef þið skiljið ekki hvað ég meina.... sjáið þá myndina fyrir neðan... ímyndið að þið séuð að fara að eiga þennan gullmola í 10-12 ár!!!

http://pic80.picturetrail.com/VOL1015/3460945/7391439/263322254.jpg

Reynið svo að segja mér að þið væruð ekki að deyja ;)

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 16:18:39 / helga_b

Can't stop thinking about the dog!!

JEEEEIIJJJ!!!! Ég hoppaði hæð mína (sem er nú reyndar ekki mikil) en samt. á fimmtudaginn! Við ákváðum að fara upp og tala við Axel og Þurí um leigusamninginn og hundinn og allt svona dótarí. En þá var Þurí ekki heima, þannig að Axel bað okkur um að koma eftir helgi, en rétt áður en við vorum farin niður tröppurnar, þá spurði hann hvort við vorum eitthvað að spá með hundinn. Og við alveg jaaaaaaá.... alveg með hnút í maganum um hvort það yrði já eða nei, og þá var komið að svarinu sem ég var búin að bíða svooo lengi eftir..

ÞAРVAR JÁ!!!!!!!

OH MY GOD hvað ég var glöð!!! Um leið og hann lokaði hurðinni þá hoppaði ég og hoppaði eins og hæna á kengúrupriki!! Þannig að nú er bara næsta mál á dagskrá að redda sér lítilli vinnu í sumar, afþví ég verð víst heima að hugsa um hundinn í sumar! JEEEEIJJ!!

En allaveganna, how good will I look with a dog! Especially this one!! Comment people!!

Keep On TRuCKiN! Helga Husky-owner (nafnið passar vel allavega!!) ;) 

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 21:27:51 / helga_b

HUSKY HUSKY HUSKY on my mind!!!!!

Jæja.. kannski ég bloggi.. ;)

En í gær skruppum ég og Ellert til Akureyrar og var megin tilgangur þeirrar ferðar að skoða hundaræktunina Hulduheimsræktun að Búlandi. En þau sérhæfa sig í tegundinni Siberian Husky sem er sleðahundur. En ég og Elli erum búin að vera að deyja seinasta árið af því okkur langar svo hriiiiikalega mikið í einn svona. 

Við vorum komin á AK um kl. 10 og lá þá bein leið á Subway í snæðing ;) þaðan fórum við á Glerártorg að versla í Rúmfatalagernum dót í íbúðina og þar næst versluðum við föt á Lerta sperta. 
Og á meðan þetta allt gekk á var ég á fullu að reyna að ná í Huldu sem að er með ræktunina, en það gekk e-ð brösulega, en tókst á endanum þar sem við vorum næstum búin að leggja afstað heim.

Þá fórum við og hittum hana og tvo hunda sem hún var með, með sér. Þær Dinuh og Paris  (að mig minnir)  Þær voru alveg gullfallegar, ég fékk alveg í magan við það að sjá þær!! Svo fengum við að kíkja uppí ræktunina til hennar og þar var sko fjör! Þar voru örugglega alltað 20 hundar allir alveg svaka æstir. Þar fengum við að fara með Huldu að gefa þeim að borða og fengum svoltið að vera í kringum hundana sem var æðislega gaman! Það var alveg rosalega mikið af fallegum hundum þarna. Meðal annars einn sem að ég og Ellert hefðum alveg viljað taka með okkur heim bara strax, hann heitir Inca og er rakki, alveg svakalega flottur, með blá augu og svaka massaður, en alveg ótrúlega gæfur og skemmtilegur. :) fæ alveg kjánahroll að hugsa um hann. Svo fengum við líka að hitta tíkinaYlfu sem er líklegast hvolpafull og það væri þá hvolpur frá henni sem við myndum fá (ef svo fer) hún var alveg rosalega falleg líka, með eitt blátt auga og hitt brúnt. Feldurinn hvítur og rauður og hún var alveg ótrúlega flott!

Mig langaði rosalega í svona hund þegar ég fór að lesa mig til um hann, en svo eftir að hafa hitt svona hunda þá langar mig svo mikið í svona hund að ég get ekki líst því með orðum!
Ég myndi gera hvað sem er til að fá Siberian Husky!!!

Keep on Truckin Helga B (vonandi, bráðum, stoltur Husky eigandi!) :D


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.01.2007 21:07:02 / helga_b

Jól og e-ð

Hæbbserí dæbbserí!!

Já það er nú e-ð lítið að frétta af mér.. Er bara búin að vera að vinna, éta og sofa (í nýja rúminu mínu og Ellerts ;) )  fyrir, yfir og eftir hátíðarnar. Sé rosalega eftir því að hafa ekki sparað fyrir ferð e-ð út yfir jól og áramót! En þetta reddaðist svosum alveg. Við fórum nefnilega í jeppaferð uppí Snæfell á milli jóla og nýárs og það held ég að hafi reddað öllu!

En það er komin ný síða sem ég vill benda ÖLLUM á að kíkja á, það er síða sem að jeppafélagið Pony Trucks er með :D semsagt: ég, Ellert, Halli, Ingi Árni og allir súkku eigendur eru í.. :) Endilega tékkið á henni hér

www.blog.central.is/pony_trucks

En annars hef ég voðalega litlu fleira að segja frá nema bara frá rúminu mínu sem er með rafmagni!!! Niiiiiiiiice..... og frá öllum jólagjöfunum mínum sem að voru mjög flottar fékk Queen 3 greatest hits CD, American Dad season1 DVD, PinkFloyd Pulse DVD, teppi, handklæði, peysu, húfu, e-ð make-up dót og brettahjálm frá Ellerti og margt margt fleira flott!! En annars nenni ég ekki að blogga meira

Tú-di-lú -------- Helga_B


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.11.2006 22:38:58 / helga_b

Mið-Austurland City!

Hmm.. er fólk ekkert að fatta nýju síðuna eða á ég bara að halda áfram hér, það hefur allaveganna ekkert verið commentað á sirkus síðunni þannig að ég held bara áfram hér. En seinasta blogg er hér: En annars er allt fínt að frétta. Var að vakna, sit hérna grútmygluð kl: 22.14 ætlaði bara rétt að vakna til að fá mér drekka en nei þá hringir akkurat Gallup þannig að ég glaðvaknaði bara. En mér finnst alveg fínt að taka þátt í svona könnunum, þessi var einmitt í sambandi við Alcoa og hvaða skoðanir ég hef á álverinu. Og auðvitað er ég jákvæð með það, en það er nú samt synd hvernig er farið með landið okkar. En eitthvað varð að gera svo að byggðin hérna fyrir austan leggðist bara ekki í eyði. Svo var líka verið að spyrja hvernig mér finndist að búa á mið-Austurlandi og ég svaraði mjög ánægð (að sjálfsögðu). Mér finnst alltaf eins og að fólkið fyrir sunnan haldi að við krakkarnir hér fyrir austan séum alveg að deyja úr leiðindum hérna og gera allt til að lokka okkur suður, Sem er svo fáranlegt því að það er auðvitað ekkert endalaust pláss þar. Getiði ímyndað ykkur ef að öll landsbyggðin flyttist til Reykjvíkur, það er yrði hræðilegt! Ég fæ tár í augnum bara að hugsa um það. Ég er mjög stolt af því að hafa alist upp hérna "úti á landi" mér finnst ég get meira og vita meira en margir krakkar fyrir sunnan. Það er eins og þeim sé skítsama um allt og alla. Svo er það þetta fólk sem er svoleiðis að berjast fyrir því að Kárahjúkavirkjun verði ekki reyst, fólkið sem að vissi nákvæmlega EKKERT hvar Kárahnjúkar voru áður en það byrjað á þessu. Pff.. rumpulýður. En persónulega finnst mér frábært að búa hérna, þótt maður fái auðvitað leiða og langi að fara e-ð annað, en þá er það í mínum sporum e-ð út fyrir landsteinana, það er hægt að fara lengra en bara til stórborgarinnar Reykjvíkur! En ég tek það fram að ég á væntalega eftir að fara til Reykjavíkur í skóla þannig að ekki segja "in your face" þegar að því kemur. ;) En annars er Ellert núna í vaktavinnu inní frystihúsi að gera við bader-vélarnar í síldinni. Alveg einstaklega gaman ;) En það er gott að hann er byrjaður að vinna. Og að hann fari beint í vaktavinnu sem reynir ekkert rosalega á hendina á honum, er auðvitað frábært. En af mér er það að frétta að ég var í prófi í pH-gildi og fékk ég 9 og var hæst. Það hefur ekki gerst leeeeeengi að ég hafi verið hæst í einhverju, og er ég mjög stolt af sjálfri mér hvað mér gengur vel í skólanum. :) hipp hipp húrra fyrir því! ;) En nóg í bili... KeeP On TRuCKiN! HeLgA_B!

» 5 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 12:53:58 / helga_b

NÝ SÍÐA!!

http://helga23.minnsirkus.is GO PEOPLE GO!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 00:52:45 / helga_b

...

Góðan dag bræður mínir og systur! Hehe ég ákvað nú að láta slag standa og skrifa e-ð pínu hingað inn, svona í tilefni dagsins, ekki það að þetta sé e-ð merkilegur dagur sko... AnyWho!! Ég er búin að bralla ýmislegt í sumar skal ég segja ykkur. Og í fyrsta lagi þá var það Danmerkur ferðin sem stendur allra hæst uppúr. En ég var ein af einhverjum 20 nobburum sem fóru á Hróarskeldu, og ég er ekki frá því að þetta hafi verið með einum af mínum uppáhalds utanlandsferðum en þær teljast 3 samtals :D Hehe það var mikið brallað þarna úti, aðallega þó drukkið bjór, labbað um og hlustað á tónlist. Maður hitti fullt af allaveganna fólki og allir mjög hressir og kátir, eitt samtal stendur þó uppúr... Við vorum í partýtjaldinu hjá Bjarti, Gísla og þeim og það fylgir jú bjórdrykkjunni að þvagblaðran lætur stöðugt vita af sér. Og semsagt í einni af mörgum kamarsferðum mínum (takið eftir KAMARS ekkert rennandi vatn, meaning engin vatnsklósett) blegh! þá var ég á leiðinni tilbaka þá kemur einhver strákur og segir e-ð við mig á dönsku og ég stend bara og horfi á hann eins og geimvera og skil ekki ORÐ! segi bara á móti \"English\" og þá segir Hann: \"Ahh ok where are you from?\" Ég: \"Iceland\" Og þá bjóst ég annaðhvort við að heyra: Búið þið í snjóhúsum? eða \"Já þar sem Björk á heima eða Sigurrós\" en nei þá segir hann... Hann: Jaaá.... Þið voruð einu sinni undir Danaveldi! Og ég hélt ég myndi missa andlitið, það var einhver tvítugur gaur á Hróarskeldu sem í alvörunni vissi e-ð um Ísland! og ég hikstaði einhvern veginn uppúr mér hálfringluð.. \"..yeah\" og hann hélt bara áfram \"Do they still teach danish in the schools?\" Ég játa það náttúrulega.. þá spyr hann mig afhverju ég kunni þá ekki dönsku?! Semsagt BUSTED! ég segi við hann að ég geti lesið dönsku en vill helst ekki tala hana og ég skil ekki stakt orð þegar hún er töluð. Þá segir hann \"But if I write on my phone, could you then talk to me in danish?\" og ég segi já.. NEI NEI tekur þá gaurinn ekki bara upp síman og byrjar að skrifa í message \"forstår du hvad jeg siger\" og e-ð svona á dönsku, spyr mig tildæmis hvernig ég skemmti mér á Roskilde og hvort þetta sé fyrsta skiptið mitt þar og svona. Og við semsagt stöndum þarna útá túni, hann að skrifa í símann sinn og ég segi ekkert, bara kinka kolli og segi \"Jebb\" annaðslagið. Svo fer hann e-ð að spurja hvar við séum í tjaldi og segir að ég sé såd (sæt, hvernig sem það er nú skrifað!) svo skrifar hann e-ð meira, svo fer samtalinu eða réttarasagt samskrifinu að ljúka og hann segir bless við mig og segir mér að skemmta mér vel og við þarna kveðjumst án þess að segja múkk! Hehehe þetta er án efa stórfurðulegasta samtal sem ég hef átt við nokkurn mann! :D ALGJÖR SNILLD! En annars gerðum rosalega margt og mikið skemmtilegt fórum í tívolíið og dýragarðinn og svo auðvitað kíktum við í Kristjaníu (geggjað place btw)! Ég verslaði nú ekkert neitt rosalega mikið bara svona nytsamlega hluti, tösku, föt og svo reyndar keypti ég mér vatnspípu eða Hukkah eins það er kallað, það er svona indversk eða þannig pípa sem að maður setur ávaxtatóbak í. Ótrúlega skemmtilegt e-ð, maður fær svona nett nammibragð í munninn. Og það er ekkert mál að reykja þetta afþví þú ert í rauninni ekkert að reykja, bara svona púffa e-ð. :D En já ég ætla setja inn mynd af ömmu minni sem ég tók um Verslunarmannahelgina en þá leyfði ég fjölskyldunni að prófa þetta og auðvitað prófaði Amma Töffari þetta HAHAHA hún er algjör snillingur!! :D http://www.picturetrail.com/gallery/view?p=999&gid=8787542&uid=3460945 En já annars er allt gott að frétta, ég er byrjuð í skólanum á hárgreiðslubraut og líkar mjög vel við mig. Verð að vinna með skólanum í Olís. Maður verður nú einhvern veginn að geta lifað og það gerir maður ekki peningalaus. En já ég er farin að horfa á Rockstar: Supernova. En áður en ég hætti þá ætla ég að setja inn mynd af fyrrverandi vinnufélaga mínum sem ég tók í sumar, þetta er hún Vilborg að skera lauk! http://www.picturetrail.com/gallery/view?p=999&gid=8787542&uid=3460945 hahaha hún er eins og geðsjúklingur!!! verði ykkur að góðu :D -----------KeeP oN TRuCKiN----------- Helga_B!------------------------------------------

» 9 hafa sagt sína skoðun

05.05.2006 12:05:57 / helga_b

Halú Halú... :)

Jæja.. égákvað nú að vera góð stelpaog skrifa e-ð smá hérna inn. En svona aðalástæðan er sú, að ég er komin með flug og miða á Hróarskeldu 2006! Það er alltaf búið að krauma í mér í svona 3 ár að fara á Kelduna, en einhvernveginn aldrei farið útaf peningaskorti :S En í ár snérist hefðin við og ég og Ellert förum saman til DK BÆRILEGT!! Hlakkar ekkert smá til mar! Fljúgum með Skúla og Leu frá Akureyri 22.júní og komum tilbaka 6.júlí :D Can't wait dudes :) En já.. Annars er ég ennþá bara að vinna í Olís (vei) er alveg að deyja mig langar svo að prófa e-ð nýtt, og þá meina ég ekki að skipta um vinnu eða e-ð svoleiðis. Nei. Bara fara e-ð annað, prófa e-ð nýtt! Og þá helst ekki í Rvk eða e-ð þannig heldur fara e-ð út fyrir landssteinana. Það sem mig langar mest er Spánn, Noregur eða Ástralía. En þetta er svona það sem ég er mest að hugsa um núna.Eralveg að mygla á því hérna. :S En jájá ég nenni ekki að skrifameira í bili, er farin að fá mér beyglu niðrí Nesbæ. Nammi namm ;) ---------------------KeeP On TRuCKiN-----------Helga B---------------------------------

» 10 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 18:21:59 / helga_b

Ekkert nýtt..

Hæmm ég er bara svona að láta ykkur vita að ég er búin að setja inn myndir..

Þær eru í brettamyndir, meira djamm, landslag og allskonar myndir

Check it out dudes

-----------------------KeeP On TRuCKiN-------------- Helga B


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 10:47:03 / helga_b

Blogg

Halló.. ákvað að blogga e-ð eftir þessa helgi.

En yfir þessa helgi afrekaði ég mest ekkert.. Fór reyndar á bretti á fimmtudaginn og laugardaginn. Það var heavy nice! Tók reyndar helvíti slæma veltu á fimmtudeginum úff sko! ég set kannski myndina af förunum afþví inná myndasíðuna á eftir. Svo fór ég líka á bretti í gær með Benna litla það var fínt, bara svoltið heitt, maður var alveg að stikna ef maður þurfti að labba uppað stökkunum og svona. En allaveganna þá er bara allt ágætt að frétta. Ég ætla að setja inn hérna myndband sem ég hef ekki séð síðan lagið kom út, þetta er myndbandið með laginu Karma Police sem að Radiohead gerðu.. Djöfull man ég alltaf vel eftir þessu myndbandi, veit ekki afhverju það bara festist geðveikt í minningunni. Og það segja það fleiri þegar maður minnist á það....skrítið... :$ En já......

 -------------------KeeP On TRuCKiN'-------- Helga_B-------------


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 23:32:50 / helga_b

R.I.P Lúddi... :,(

Jájá.. svona er þetta bara :(

En litli sæti bíbí-inn minn hann Lúddi er dáinn. Hann dó í gær 13. mars. Ohh þetta er svo ömurlegt! Hann sem var svo lítill, sætur og góður og bara lang bestur! Og núna er hann farinn, núna er enginn sem syngur fyrir mann þegar maður fer í sturtu eða einhver sem að maður blístrar fyrir þegar maður fer inná bað..

En hann Lúddi okkar var lítill flækingsfugl sem að flaug á gluggann hjá ömmu og afa fyrir 2 árum og hann hefur verið hjá okkur síðan. Hann fékk rosa stórt búr til að vera í og svo fékk hann líka að vera laus inná baði, þar lifði hann samur við sig og aldrei gerði hann okkur mein. Hann bara annaðhvort bíbbaði pínu eða sat bara og horfði á hvað við værum skrítin. :)

Svo stundum fékk hann að fljúga fram í stofu og þar settist hann annaðhvort útí glugga eða uppá kertastjakana og flautaði og söng eins og hann gat. Æhh hann var svo mikil dúlla..:^) Svo man ég líka eftir því þegar Jóhanna skildi eftir spennur við hliðina á vaskinum inná baði og hann fór að skoða þær og fannst þær voða spennandi, og líka þegar við uppgötvuðum það að hann var rosa skotinn í hvítu tannstönglunum þá svona ósjálfrátt skildi maður þá eftir á baðbekknum þannig að hann hefði nú e-ð til að leika sér með.

Já hans Lúdda verður sárt, sárt saknað og það á eftir að vera rosalega erfitt að fara inná bað og hafa ekki einhvern til að taka á móti manni og hafa einhvern til að fylgjast með og tala við.. :cry: Enginn á eftir að gleyma þér Lúddalingurinn minn, söknum þín mikið...                      

                                   --Sjáumst Helga Björg :^)--


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.03.2006 16:46:49 / helga_b

RvK Ferð!

Halló halló.. ætli ég verði ekki að blogga e-ð! Fyrst að Heiða og Lea segja það!! :frown:

En allaveganna, þá fór ég til stórborgarinnar Reykjvíkur miðvikudagskvöldið 1.mars. Ellert var svo góður að skutla mér og Hákoni Gurra uppá flugvöll á fína, nýja Passat-inum hjá mömmu hans og pabba. :) Ferðin gekk vel þangað til við komum á "highway to hell" eins og Sniglabandið vill kalla þetta en við þekkjum þennan veg víst betur sem Fagradal. Þá tók á móti okkur í fyrstu beygju blinda-kóf og skafrenningur. Sáum EKKERT fram fyrir bílinn á tímabili og við sáum bara fyrir okkur að annaðhvort sætum við föst á miðjum dalnum eða að fluginu væri aflýst og við kæmumst ekki tilbaka vegna snjósins! En þegar við vorum hálfnuð með dalinn, þá bara lygndi allt og bara rosafínt veður.. Þetta var svona klassískt dæmi um veður á Íslandi! :$

En svo fórum við bara í flug og ég og Hákon töluðum og töluðum alla leiðina suður þannig að flugið var eins og korter, mjög nice. :)

Síðan þegar ég kom suður fór ég bara að horfa smá á sjónvarpið hjá Fanney frænku og svo bara fór ég að lúlla mér, var að vinna um morguninn og svona. Og já ég gleymdi næstum að segja frá því mar! Á miðvikudaginn var Öskudagur og ég og m
Magna vorum að vinna Í BÚNINGUM! hahaha algjör snilld! :D set kannski myndir inn seinna..

Síðan á Fimmtudeginum fór ég bara í Kringluna hún er svona 3 mín frá húsi frænku minnar, mjög fínt! :) Síðan komu mamma og Jóhanna suður um morguninn og þær komu niðrí Kringlu og við fengum okkur að éta saman og e-ð. Síðan fórum við e-ð að versla og svo þegar klukkan var orðin þrjú þá sagði ég við mömmu að ég þyrfti aðeins að skreppa og hún spurði mig afhverju! og ég sagði að ég væri aðeins að fara niðrí bæ. Og hún spurði mig hvað ég væri að fara að gera þangað?! Þá gaf ég henni bara smá púkaglott og sagði að það kæmi í ljós.. Þá sagði hún "Ertu að fara að fá þér tattoo?? Og ég bara ".....Kannski....." :haha: Svo fór ég heim og pantaði leigubíl og mín niðrí Íslensku Húðflúrstofuna þar sem ég fékk mér eitt stykki tattoo á vinstri úlnliðinn. :) þetta eru 4 germanskar rúnir og það eru H, S, D og J en það eru upphafsstafirnir á öllum í familý-unni svo eru svona skrautlínur í kringum rúnirnar, ég er mjög sátt með þetta. :) En annars gerði ég rosalega lítið. Verslaði ekkert rosalega mikið, 6 DVD myndir 5 geisladiska 1 buxur, 1 bol, 1 húfu og 1 par af skóm. :) En ég er samt mjög sátt með það sem ég keypti og það er fyrir öllu. :) Svo fór ég líka í bíó með Öggu við fórum á Walk the Line í Lúxus bíó geeeeeeðveikt nice og mjög góð mynd, mæli með henni! En já ég fékk líka rosagóðar fréttir í vinnunni í dag. Fjalar frændi og Elsa voru að eignast stelpu þannig að ég varð frænka í dag. Jeij!! Það er svo skrítið e-ð, afþví það var bara fyrir viku að ég sá Elsu með kúluna útí loftið og núna er bara engin kúla!

En annars nenni ég ekkert að skrifa meira..

Meira kemur næst... hvenar sem það verður nú..

----------KeeP On TRuCKiN'---------------HeLgA_B----------------


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.02.2006 13:12:09 / helga_b

Komin á Kagga!!

Öss.. já þið sáuð rétt, ég er búin að kaupa mér bíl! Ég keypti mér Ford Escort '94 árgerð, rauður að lit :D Þetta er massa-kaggi, ég keypti bílinn á 120.000 með græjunum í, en þar er 1200W magnari og keilu sem er 500 rms, svo fylgdu líka svona blá neon-ljós og svo má ekki teningunum og litlu diskókúlunum sem fylgdu líka. Þetta er alveg pimp-ass ride sko! :haha: Jahúí ég er alveg í skýjunum með hann. Er að fara á eftir og setja límmiða aftaná hann og sonna. Þetta verður dekurbarnið mitt :D hehehe

En annars er alveg óvenjulega mikið að frétta af mér.. Er byrjuð að vinna næstum alladaga niðrí Olís, sem er gott sko. Er bara að vinna á dagvöktum og svo þriðjuhverja helgi eða e-ð. En svo var ég rosalega "dugleg" í vinnunni á miðvikudaginn. Var e-ð að skera upp pylsupakka með nýjum hníf, og svo var plastið á pakkanum svo stíft að ég ákvað að gefa alla mína krafta í hann, en nei! Þá bara pop-a ég af plastinu og beint á puttann á mér og hnífurinn fer svona skemmtilega langt inní puttann á mér. Ég í einhverju rugli set puttan beint undir vatn og það blæður ekkert smá. Ranný setur plástur á hann og ég beint upp á sjúkrahús. En sem betur fer þurfti ekki að sauma mig, það var bara sett svona klemmu-plástur. :) Þannig að núna er ég með einhverja huges sáraumbúðir á puttanum og ef það er e-ð sem ég hata þá er það að vera með plástur eða einhverja aðskotahluti á puttanum OHH!! :evil:

En annars er ég bara í góðum fíling, við ætlum nokkur að hittast í kvöld heima hjá Ellerti og fá okkur bjór og horfa á Eurovision undankeppnina. Ég styð Sylvíu Nótt alveg 100% :) og í tilefni þess ætla ég að setja inn þennan link http://www.b2.is/?sida=tengill&id=147123 hahaha algjör snilld :haha:

En já.. ég nenni ekki að skrifa meira. Það er komin ný Kindin Einar á síðuna hans allir að tékka á því!

----------------------KeeP On TRuCKiN'--------Helga_B--------------------


» 7 hafa sagt sína skoðun

10.02.2006 18:36:09 / helga_b

Wa Wa Wa Wa Waaaaa....

Halló.. ég nenni ekki að blogga! Hef svo litlu að segja frá..

En allaveganna, seinustu helgi fór ég á Þorrablót VA það var ágætt. Ellert fór meira að segja líka og var allt blótið pælið í því mar, og ekki bara það heldur fórum við líka á ballið og hann dansaði, ekki ég! :D hehehe algjör snilld ;) set kannski inn myndir ef ég nenni, tékkið bara á því..

Annars er ég bara búin að vera að vinna, vinna og vinna.. Sem að þýðir að ég fæ feitt launa-umslag næst, og er ég eiginlega búin að ákveða hvað ég ætla að gera við peninginn.. Og jújú það er stefnan að kaupa sér bíl! Veeeeiiii!!! vonum bara að ég standi við það í þetta skiptið, en ég er búin að vera að spá í þessum bíl í svona 2 vikur eða e-ð og orðin bara nokkuð heit fyrir honum, en hvaða bíll það er, kemur í ljós seinna. En annars vita nokkrir hvaða bíll það er, en þeir mega ekki segja.. USSSS!! ;)

Hmm.. annars veit ég ekkert um neitt meira til að segja frá, þetta var svona það merkilegasta sem er að gerast í mínu lífi í dag, sad but true :^) eeeeen þar til næst...

---------------------KeeP On TRuCKiN'------------- HeLgA_B! ----------------


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3